Leiðbeiningar með wikispaces

Salvör Gissurardóttir tók saman
Hvað er wiki?
Wiki er tölvubúnaður sem gerir okkur kleift að búa til og breyta vefsíðum. Wiki er þannig að allir notendur geta breytt og skrifað ofan í það sem hinir gera. Þannig er Wiki verkfæri sem býður upp á nýja möguleika við samvinnu á vefnum.

Tökum sem dæmi smíði á alfræðiorðabók - Þær alfræðiorðabækur sem við þekkjum eru smíðaðar þannig að hópur sérfræðinga undir ákveðinni ritstjórn skrifar bókina saman. En í wiki þá getum við skrifað öðruvísi alfræðiorðabók. Við getum haft það þannig að hver sem er geti skrifað og breytt hverju sem er. Og þetta er einmitt eitt dæmi um hvernig wiki er notað á vefnum. Það er í smíðum núna alfræðiorðabók WIKIPEDIA. Markmiðið er að til sé Wikipedia alfræðirit á öllum tungumálum. Það eru þegar komnar yfir milljón greinar í ensku útgáfu af Wikipedia en rúmlega 12 þúsund greinar eru í íslensku Wikipedia.

Wikipedia notar ákveðna tegund af wiki, það er mediawiki og það kerfi höfum við einnig gert tilraun með í KHÍ, sjá nánar á vefnum mínum Wikivagninn - wikiknám fyrir kennara og kennaranema.

Wikispaces er ein önnur tegund af wiki og einmitt núna þá geta kennarar fengið ókeypis svæði þar. Wikikerfi eru flest mjög lík. Þú smellir bara á "Edit this Page" og bætir við því sem þú vilt bæta við og smellir svo á Save. Alltaf er hægt að fara í "history" og rekja breytingar.
Hér eru leiðbeiningar (skjákennsla í Camtasia) sem ég tók saman um Wikispaces:
Wikispaces leiðbeiningar 1. kafli 3. mín.
Wikispaces leiðbeiningar 2. kafli 4. mín.
Wikispaces leiðbeiningar 3. kafli 3. mín.
Wikispaces leiðbeiningar 4. kafli 4. mín.